Hróarsholtsgengið
Hreindýrin hennar Höbbu
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 778 dögum
ganga jólin í garð ;-)
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 938 dögum
Byrjar útilegan okkar
Könnun
Er hús nauðsynlegt í útilegunum








Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 31133
31.05.2010 09:44:03 / habba

ÚTILEGAN 2010

Nú styttist í hina árlegu fjölskylduútilegu okkar þetta árið. Helgin 2. – 4. júlí varð fyrir valinu og höfum við nú þegar pantað gott veðurJ. Staðsetningin er Bjarteyjarsandur í Hvalfirði sem er dásamlegur staður í norðanverðum Hvalfirði. Þar er fjölbreyttur rekstur, m.a. sauðfjárbúskapur, skemmtileg fjara, ferðaþjónusta og fræðslustarfsemi.  Á Bjarteyjarsandi er tjaldstæði, inniaðstaða í umbreyttri hlöðu, innigisting í sumarhúsi. www.bjarteyjarsandur.is

 Til að einfalda umsvif okkar í nefndinni þá biðjum við ykkur vinsamlegast að  tilkynna ykkar legg um útilegunaJ 
Ef einhver kemur hingað inn, má hann setja inn fréttir af sínum legg :-)

Hlökkum til að sjá ykkur, Gestur, Hrafnhildur og Ingunn


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2010 16:06:29 / kidda

Jæja

hvað segið þið gott. Farin að telja niður og svona þangað til útilegan verður. :lol:

Kemur einhver hingað inn lengur. Ef svo er látið þá vita af ykkur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2009 12:09:07 / habba

Styttist í útleguna...

Heil og sæl
jæja nú styttist óðum í útileguna góðu..
bara svo það sé á hreinu þá er dagsetningin 17.-19. júlí

Það væri gaman að fá að heyra í fólki - hvort það sé ekki glimrandi stemning :)
ég er að fara í útilegu með bankanum á sama stað um næstu helgi þannig ég tek út aðstæður.....

En það er 100% mæting frá mér og mínum, s.s. mamma, pabbi, systraskarinn og fylgifiskar

annars gott að frétta af bænum, var að byrja í sumarfríi í dag og bíð bara eftir sólinni sem er á leiðinni...

hafið það gott og hlakka til að sjá ykkur vonandi öll...
útilegukveðja
fyrir hönd nefndarinnar
Álfheiður

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.06.2009 16:35:00 / krissa

steindauð síða

hæ allir allt gott að frétta bíðum spennt eftir útilegunni kv krissa og co

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2009 11:45:41 / kidda

Í tilefni af afmæli Nonna í gær og Tryggva í dag.

Til að byrja með til hamingju báðir tveir með afmælin ykkar. En hérna koma svo Matarvísurnar.

Móra mín var mögnuð ær.
Margt til lista kunni.
Hangið þótti hennar lær.
Hnoss í okkar munni.

Gráni minn var gæðaklár
gekk um blómga haga.
Þjónn mér í átján ár
endaði nið´í maga.

Skjöldu þótti grasið gott
gaf oss mjólk í könnu.
Ég lét hennar hupp í pott
hitt fór allt á pönnu.

Nú er kisa næstum dauð
nú er önduð læða.
Reykt sem álegg oná brauð
er hún kostafæða.

Hundinn minn ég hef misst
hann var nefndur Lappi.
Austurlenska eldhúslist
æfi ég nú af kappi.

Griðkonan mín Gudda hét
gikt var henni að bana.
Vordag einn hún lífið lét
leiður át ég hana.

Víst ég átti vinnumann
var hann býsna langur.
Upp á fjöll hann ætíð rann
er ég gerðist svangur.

Örlög bóndans eru ljót
allt með sama sniði.
Hráan át ég af mér fót
upp að mjaðmaliði.

Sá sem samdi þetta heitir Þórarinn Már Baldursson. Einhvern veginn minnir mig að Þurý hafi breytt þessu aðeins svo að það félli betur að Hróarsholti en er ekki viss. Vil ekki trufla hana þar sem pabbi hennar kvaddi þennan heim í vikunni og hún hefur nóg að stússast í núna. Vonandi geta dætur þessarra kæru móðurbræðra minna prentað þetta út og fært þeim með kveðju frá mér og Pétri.


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.04.2009 19:06:13 / krissa

x-

gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn í fyrsta skipti síðan ég fékk kosningarétt kaus ég ekkert setti stórt X yfir allann seðilinn sorry það var bara enginn sem mér leist á annrs j höfum það gott hér í sveitinni er að fara að bera hrossaskít á beðinn og blettinn kv Krissa

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2009 11:04:29 / kidda

Gleðilegt sumar kæra frændfólk.

Vona að allir hafi það gott í dag.:)




» 1 hafa sagt sína skoðun

15.04.2009 10:23:37 / kidda

Gauji og Hulda

Innilegar hamingjuóskir til ykkar beggja í dag og á morgunn.:d

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.04.2009 15:47:47 / habba

Nýjar útilegufréttir

Heil og sæl
Það er ekkert mál að hætta við húsið, ég talaði við forstöðumanninn í dag og þá er almennt gjald 1500 kr. nóttin fyrir tjaldstæðið..
Ég held að það sé besta lausnin, hættum við húsið og pöntum bara bongó blíðu...
Síðan er alltaf hægt að kíkja á barinn...

En megið endilega láta í ykkur heyra hvort það séu ekki alilr sáttir við þessa tillögu...
heyrumst og skjáumst
Álfheiður nefndarmeðlimur..

» 10 hafa sagt sína skoðun

31.03.2009 21:13:18 / habba

Útilega Útilega

Sæl verið þið
jæja loksins birtast fréttir af árlegu útilegunni okkar...
við erum s.s. búnar að ákveða stað og stund..

Staður : Brautarholt Skeiða og Gnúpverjahreppi,  Þið kannist eflaust flest við staðsetninguna, þarna er barnaskóli, sundlaug, tjaldstæði og áður var þarna sjoppan Gósen en nú er starfrækt þar Kertasmiðja... http://kertasmidjan.is/
Þannig að þetta er allt á einum stað, já ekki slæmt að geta verslað sér kerti :):)
og kannski væri hægt að fara á hestbak .. ef áhugi væri fyrir því

Stund: 17.-19.júlí, ástæða fyrir því að við völdum þessa dagsetningu var sú að tjaldstæðið var upptekið helgina á undan..

Við erum s.s. búnar að bóka tjaldstæðið ásamt afnotum af húsinu ( skólahúsinu þ.e.a.s sal þar og salernum) yfir helgina
Okkur stendur til boða að leigja þetta þ.e.a.s. tjaldstæði fyrir ca 20 tjöld/vagna( skiptir ekki máli hvort um er að ræða tjald, tjaldvagn eða húsbíl) og húsið á 100.000 kr.

VIð viljum endilega fá að heyra ykkar álit á þessu...  eftir að hafa skoðað verð á öðrum stöðum þá kemur þetta vel út þar sem við erum með hús með en fer auðvitað eftir fjölda tjalda..  ég miða ca við 20 tjöld/vagna

Hægt er að gista á Húsatóftum, http://www.hestakrain.is/, fyrir þá sem vilja innigistingu en um er að ræða upp á búin rúm... Dúna vildi nú ekki gefa okkur endanlegt verð.. gætum nú eitthvað samið við hana...

En já endilega komið ykkar skoðunum á framfæri, veit að við yrðum að finna einhverja sanngjarna leið við innheimtun á kostnaði, en við finnum nú út úr því...

Hlakka til að heyra í ykkur - vonandi komast sem flestir
f.h. nefndarinnar
Álfheiður


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.03.2009 21:01:43 / kidda

Útilegan hefur færst til um eina viku í plús

Hún verður helgina 18 og eitthvað júlí.

Nánari fregnir berast frá nefndinni mjög fljótlega.

En fyrir þá sem vilja sjá bílinn hans Pétur er bent á að það eru komnar eða er verið að setja myndir af honum á Kiddubloggið í þessum skrifuðu orðum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2009 15:50:55 / kidda

Er ekki einhver

í ástandi til að skrifa um hve gaman var í gærkvöldi svo að við(lesist ég) geti engst um í eftirsjá. Vil fá lýsingar á öllu, hvernig Gayja og Frikka líkaði þetta brasilíska og allt bara. Hverjir urðu útúrdrukknir og hverjir voru ekki til friðs.

Koma nú og skrifa eitthvað.

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.03.2009 19:17:10 / krissa

dekur :-)

Stelpur láttið mig bvita hvort þið ætlið í SPAIÐ ÉG ÆTLA KL 5 kv KRISSA

» 8 hafa sagt sína skoðun

16.03.2009 10:52:38 / krissa

hittingur :-)

 Hæ hæ allir við vorum að senda póst á alla ekki víst að það hafi skilað sér, en hugmyndin er að hittast laugard 21 mars í selinu við engjaveg kl 20- 20,30 allir koma með eitthvað snakk og sinn  drykk, got ef flók gæti látið vita hvort það kæmi, líka er hugmynd að við KONURNAR færum í SPAÐI hjá AGNESI seinnipart á laugardeginum. Hjálmar kemst ekki :-( en við spilum bara með okkur sjálf og alla hina :-) sjáumst öll´svo á laugard kv Krissa og Guðrún T

» 9 hafa sagt sína skoðun

10.03.2009 23:48:11 / krissa

frekja

kidda mín það er nú ekkert nýtt:lol:

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18